Sagan - Leiðin til okkar

Ingólfur Arnarson kom til Íslands um 870 og var hann hinn fyrsta vetur við Ingólfshöfða.

Næsta vetur dvaldi hann á Hjörleifshöfða og hinn þriðja undir Ingólfsfjalli, vestan Ölfusár.

Þaðan fór hann næsta vor til Reykjavíkur þar sem hann tók sér búsetu samkvæmt tilsögn goðanna.

Ferðir Ingólfs Arnarsonar merktar með gulri línu

Ingólfur Arnarson, fyrsti landnámsmaður
Íslands, byggði sér skála og hafði
vetursetu undir Ingólfsfjalli.
Ingólfsfjall og hóll mikill á toppi
þess, Inghóll, sem sagður er haugur
Ingólfs, eru við hann kennd.