|
Í glæsilegum sal Ingólfsskála gefst nú tækifæri til að halda allt að 250
manna veislur í anda þeirra víkinga sem námu landið svo og þeirra íslensku víkinga sem nú byggja Ísland.
Starfsfólk
Ingólfsskála leggur áherslu á að gestum líði vel og þeir njóti þess
sem á borð er borið.
Matreiðslumeistarar
skálans láta víkingaborðin svigna undan kræsingum og enginn fer svangur
burt.
Í
Ingólfsskála ræður ríkjum gestrisni víkingahöfðingja fyrri alda.
Í
Ingólfsskála er boðið upp á veisluþjónustu af öllum toga allt frá
víkingaveislum til árshátíða, brúðkaupa, jólahlaðborða, þorrablóta
o.s.frv.
|